Lalala númer tvö
15 June 2006 | 16:07Já, það er úr nógu að moða fyrir þetta blogg en það er spurning um hversu langt ég nenni að hafa það.
Á mánudagskvöldið voru hinir alræmdu Roger Waters tónleikar sem ég fór auðvitað á. Má ekki missa af forsprakka uppáhaldshljómsveitarinn sinnar halda tónleika á Íslandi. Tónleikarnir komu nokkuð vel út og þó ég hafi varla labbað sáttur út úr Egilshöllinni þá áttaði ég mig á því daginn eftir að þessir tónleikar voru alveg vel þess virði og meira til.
Ég byrjaði í æfingarakstri á mánudaginn og er búinn að taka þrjá klukkutíma tíma núna. Nei, ég er ekki með Óla Lár. Minn heitir Hilmar og er vinur gamla settsins. Hann lofaði mig þvílíkt í fyrsta tímanum, ég drap btw aldrei á honum í fyrsta tímanum, og einnig í öðrum, þó drap ég einu sinni á honum þá, og líka áðan, sagði að ef ég héldi svona áfram yrði ég frábær ökumaður. Ég drap samt á honum áðan. En hvorgut af skiptunum sem ég drap á honum var á örlagastundu eins og á ljósum, fyrra skiptið var þegar ég stoppaði í brekku og seinna skiptið var áðan þegar ég var að bakka úr stæðinu frá Hagkaup. Ég byrja í ökuskóla eitt á mánudaginn og verð í honum fram á miðvikudag. Fer svo í annan tíma á fimmtudaginn og þá fer óðum að styttast í æfingarakstur. Feis.
Seinasti hluturinn er að ég vonast eftir feitu umslagi um mánaðarmótin. Búinn að vinna fimm til sex tíma á hverjum degi í tvær vikur og þar á undan sjö tíma á dag í nokkra daga. Svo er 17. júní eftir tvo daga og það er feitur peningur. 6×1600 kall skildist mér.
Segja þetta gott.







og þetta var þorsteinn sem skrifaði
Þorsteinn | 16 June 2006 | 9:19og þetta var þorsteinn sem skrifaði
Feis?Ég hef haft bílpróf nú í umþb 2 mánuði.
Anonymous | 16 June 2006 | 9:19Feis?
Ég hef haft bílpróf nú í umþb 2 mánuði.
"...og þó ég hafi varla labbað sáttur út úr Egilshöllinni
Robbi | 16 June 2006 | 10:10“…og þó ég hafi varla labbað sáttur út úr Egilshöllinni þá áttaði ég mig á því daginn eftir að þessir tónleikar voru alveg vel þess virði og meira til.”
Það var ekki að sjá á þér að þú hefðir verið eitthvað ósáttur við tónleikana þegar við löbbuðum saman út úr Egilshöllinni!
Og vá hvað þú ert duglegur að vinna! Fimm til sex tímar á dag! Þú verður milljarðamæringur með þessu áframhaldi.
Er það mælikvarði á að vera góður bílstjóri að drepa
Ãsp | 16 June 2006 | 13:07Er það mælikvarði á að vera góður bílstjóri að drepa aldrei á bílnum??? Segðu Frank það, hann segir að ég sé lélegur bílstjóri, samt drep ég nææææææstum aldrei á bílnum.
Þú duglegur að vinna! Þú ferð bara að geta endurgreitt manni fyrir öll þessi ár
Ösp drepur ekki á bílnum en hún **uhumm** bakkar á
Frank M | 16 June 2006 | 13:57Ösp drepur ekki á bílnum en hún **uhumm** bakkar á bíl sem hún horfði á 10 sek áður.
Maggi þú átt afmæli í desember og ert að feisa
tinna | 16 June 2006 | 14:29Maggi þú átt afmæli í desember og ert að feisa fólk út af æfingaakstri …?
Ég drap heldur ekkert á í fyrstu tímunum, það gera það fáir því maður er varla sjálfur að keyra.
Prófdómarinn minn var samt hissa að ég drap ekkert á í prófinu (eða prófunum)
Það er víst frekar sjaldgæft að gera það ekki.
Frank, Ösp er líka kona og þú veist hvað er
Robbi | 16 June 2006 | 14:55Frank, Ösp er líka kona og þú veist hvað er sagt: “Konur kunna ekki að bakka og karlar kunna ekki að strauja.” Eða var það ekki einhvern veginn svoleiðis..?
Þú mátt drepa alveg 3x á bílnum í prófinu án
Þorsteinn | 16 June 2006 | 20:04Þú mátt drepa alveg 3x á bílnum í prófinu án alls vesens. Ég komst líka í gegnum prófið án alls vesens.
Nei mig langaði bara að segja feis.En annars er hann
Maggi | 16 June 2006 | 20:59Nei mig langaði bara að segja feis.
En annars er hann voðalega lítið að skipta sér af mér. Hann segir mér að gefa inn, bremsa og allt það, svo grípur hann inní ef ég er á of miklum hraða á leið í beygju og annar bíll að koma á móti eða álíka.
Ég fór í 4 ökutíma og búið!!! En það var
Hlynur | 18 June 2006 | 4:25Ég fór í 4 ökutíma og búið!!! En það var þá. Nú er einhverskonar taka í rass peningaplokk í gangi svo þið í þroskaheftu kynslóðinni fáið nó að punga út
Ökukennarinn minn er James Bond nútímans. Hann tekur aldrei niður
Hekla | 20 June 2006 | 4:05Ökukennarinn minn er James Bond nútímans. Hann tekur aldrei niður sólgleraugun, og það vantar á hann putta sem hann missti pottþétt við að drýgja einhverja mega hetjudáð.
annars er ég búin að fara í þrettán tíma og helvítis ofurmennið þorir ekki að hleypa mér í æfingarakstur.