MaggiDan.com

  • rss
  • Blogg
  • Kvikmyndir & tónlist
  • Um mig
  • Myndir
  • Hafa samband

Lalala númer tvö

15 June 2006 | 16:07

Já, það er úr nógu að moða fyrir þetta blogg en það er spurning um hversu langt ég nenni að hafa það.

Á mánudagskvöldið voru hinir alræmdu Roger Waters tónleikar sem ég fór auðvitað á. Má ekki missa af forsprakka uppáhaldshljómsveitarinn sinnar halda tónleika á Íslandi. Tónleikarnir komu nokkuð vel út og þó ég hafi varla labbað sáttur út úr Egilshöllinni þá áttaði ég mig á því daginn eftir að þessir tónleikar voru alveg vel þess virði og meira til.

Ég byrjaði í æfingarakstri á mánudaginn og er búinn að taka þrjá klukkutíma tíma núna. Nei, ég er ekki með Óla Lár. Minn heitir Hilmar og er vinur gamla settsins. Hann lofaði mig þvílíkt í fyrsta tímanum, ég drap btw aldrei á honum í fyrsta tímanum, og einnig í öðrum, þó drap ég einu sinni á honum þá, og líka áðan, sagði að ef ég héldi svona áfram yrði ég frábær ökumaður. Ég drap samt á honum áðan. En hvorgut af skiptunum sem ég drap á honum var á örlagastundu eins og á ljósum, fyrra skiptið var þegar ég stoppaði í brekku og seinna skiptið var áðan þegar ég var að bakka úr stæðinu frá Hagkaup. Ég byrja í ökuskóla eitt á mánudaginn og verð í honum fram á miðvikudag. Fer svo í annan tíma á fimmtudaginn og þá fer óðum að styttast í æfingarakstur. Feis.

Seinasti hluturinn er að ég vonast eftir feitu umslagi um mánaðarmótin. Búinn að vinna fimm til sex tíma á hverjum degi í tvær vikur og þar á undan sjö tíma á dag í nokkra daga. Svo er 17. júní eftir tvo daga og það er feitur peningur. 6×1600 kall skildist mér.

Segja þetta gott.

Categories
Uncategorized
Comments rss
Comments rss
Trackback
Trackback

« Sjötti sjötti núllsex Hæ hó og jibbý jei. »

11 responses

og þetta var þorsteinn sem skrifaði

Þorsteinn | 16 June 2006 | 9:19

og þetta var þorsteinn sem skrifaði

Feis?Ég hef haft bílpróf nú í umþb 2 mánuði.

Anonymous | 16 June 2006 | 9:19

Feis?
Ég hef haft bílpróf nú í umþb 2 mánuði.

"...og þó ég hafi varla labbað sáttur út úr Egilshöllinni

Robbi | 16 June 2006 | 10:10

“…og þó ég hafi varla labbað sáttur út úr Egilshöllinni þá áttaði ég mig á því daginn eftir að þessir tónleikar voru alveg vel þess virði og meira til.”

Það var ekki að sjá á þér að þú hefðir verið eitthvað ósáttur við tónleikana þegar við löbbuðum saman út úr Egilshöllinni!

Og vá hvað þú ert duglegur að vinna! Fimm til sex tímar á dag! Þú verður milljarðamæringur með þessu áframhaldi.

Er það mælikvarði á að vera góður bílstjóri að drepa

Ösp | 16 June 2006 | 13:07

Er það mælikvarði á að vera góður bílstjóri að drepa aldrei á bílnum??? Segðu Frank það, hann segir að ég sé lélegur bílstjóri, samt drep ég nææææææstum aldrei á bílnum.

Þú duglegur að vinna! Þú ferð bara að geta endurgreitt manni fyrir öll þessi ár ;-)

Ösp drepur ekki á bílnum en hún **uhumm** bakkar á

Frank M | 16 June 2006 | 13:57

Ösp drepur ekki á bílnum en hún **uhumm** bakkar á bíl sem hún horfði á 10 sek áður.

Maggi þú átt afmæli í desember og ert að feisa

tinna | 16 June 2006 | 14:29

Maggi þú átt afmæli í desember og ert að feisa fólk út af æfingaakstri …?

Ég drap heldur ekkert á í fyrstu tímunum, það gera það fáir því maður er varla sjálfur að keyra.

Prófdómarinn minn var samt hissa að ég drap ekkert á í prófinu (eða prófunum)
Það er víst frekar sjaldgæft að gera það ekki.

Frank, Ösp er líka kona og þú veist hvað er

Robbi | 16 June 2006 | 14:55

Frank, Ösp er líka kona og þú veist hvað er sagt: “Konur kunna ekki að bakka og karlar kunna ekki að strauja.” Eða var það ekki einhvern veginn svoleiðis..?

Þú mátt drepa alveg 3x á bílnum í prófinu án

Þorsteinn | 16 June 2006 | 20:04

Þú mátt drepa alveg 3x á bílnum í prófinu án alls vesens. Ég komst líka í gegnum prófið án alls vesens.

Nei mig langaði bara að segja feis.En annars er hann

Maggi | 16 June 2006 | 20:59

Nei mig langaði bara að segja feis.

En annars er hann voðalega lítið að skipta sér af mér. Hann segir mér að gefa inn, bremsa og allt það, svo grípur hann inní ef ég er á of miklum hraða á leið í beygju og annar bíll að koma á móti eða álíka.

Ég fór í 4 ökutíma og búið!!! En það var

Hlynur | 18 June 2006 | 4:25

Ég fór í 4 ökutíma og búið!!! En það var þá. Nú er einhverskonar taka í rass peningaplokk í gangi svo þið í þroskaheftu kynslóðinni fáið nó að punga út

Ökukennarinn minn er James Bond nútímans. Hann tekur aldrei niður

Hekla | 20 June 2006 | 4:05

Ökukennarinn minn er James Bond nútímans. Hann tekur aldrei niður sólgleraugun, og það vantar á hann putta sem hann missti pottþétt við að drýgja einhverja mega hetjudáð.

annars er ég búin að fara í þrettán tíma og helvítis ofurmennið þorir ekki að hleypa mér í æfingarakstur.

Leave a comment

You can use these tags : <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Dagatal

June 2006
M T W T F S S
« May   Jul »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Nýlegar athugasemdir

  • Arnar Gísli on Íslendingar…
  • Maggi on Íslendingar…
  • Maggi on Íslendingar…
  • Arnar Gísli on Íslendingar…
  • Robbi on Íslendingar…
  • Arnar Gísli on Íslendingar…

Flokkar

  • Blogg (53)
  • Kvikmyndir (13)
  • Sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • Tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Blogg

  • Anna og Robbi
  • Arna
  • Frank & Ösp
  • Frank Gabríel
  • Hekla
  • Hlynur Jón
  • Linda
  • Myndagemsablogg
  • Stebbi
  • Tinna

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Log in
  • Entries RSS
  • Comments RSS
  • WordPress.org

Nýlega hlustað á

Mynd af handahófi

Facebook


Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox