Skeljanes - Ártún
28 May 2006 | 20:15Haha nau. Ég skrifaði seinustu tvö blogg með sléttum tólf tímum á milli; +- 59 sekúndur. Þetta finnst mér magnað.
Haha nau. Ég skrifaði seinustu tvö blogg með sléttum tólf tímum á milli; +- 59 sekúndur. Þetta finnst mér magnað.
Merkilegur dagur hjá mér, keypti Pink Floyd Shine On boxið í dag. Tíuþúsundeitthundraðnítíuogníu krónur takk fyrir, á 15% afslætti. Þó vel þess virði þar sem þetta inniheldur átta diska, þar af einn tvöfaldan, 111 blaðsíðna bók og tíu póstkort, ég veit það hljómar plebbalegt en þau eru mjög svo kúl. Það versta við þetta er að ég keypti mér tvo af þessum diskum fyrir tveimur vikum. En þeir voru á tilboði svo það er í lagi og ekki sakar að eiga þá, enda merkilega góðir. Eitt annað er mjög kúl við þetta sett er að ef þú raðar diskunum upp í hillu mynda hliðarnar á diskunum Dark Side Of The Moon merkið. Svipað og allar Andrésar Andar syrpurnar mynda myndir af persónunum og „Syrpa“ efst, nema þetta er bara Pink Floyd merki. Ógó flott.
Annað er að ég kláraði Prison Break seríuna. Fyrir fólk með hjartavandamál mæli ég ekki með tveimur næst síðustu þáttunum, án djóks, það gæti endað illa (með áherslu á að gæti mun uppfyllast). Þeir eru svo ógeðslega fáránlega geðveikislega spennandi að eftir þá var bolurinn minn rakur og ég skjálfhentur með hjartað sláandi hraðar en ég veit ekki hvað, skal reyna að finna sambærilegan samanburð, þannig að ég ákvað bara að róa mig niður, taka úr uppþvottavélinni og horfa síðan á síðasta þáttinn. Spurning um hvort þetta verði langavitleysa eins og Lost heitinn. Ég er einmitt búinn að vera að bera þær tvær seríur saman og ég get ekki sagt annað að þrátt fyrir hvað Lost var spennandi og góðir þá bera Prison Break höfuð og herðar yfir Lost.
Þriðji hluturinn gerðist reyndar í gær en þá kom Robbi heim frá Bandaríkjunum með sex gjörsamlega snargeðveika diska handa mér, diskar sem ég hef fæsta séð í hillum plötubúða hér á landi. Þeir eru Death From Above 1979 - You’re A Woman, I’m A Machine, The Mars Volta - De-Loused In The Comatorium, The Raconteurs - Broken Boy Soldiers, Portishead - Dummy, Cult Of Luna - Salvation og Yeah Yeah Yeahs - Fever To Tell. Það besta við þetta er að ég er að borga um 7.000 kall fyrir þetta. Það versta er að þeir tveir diskar sem ég hlakkaði eiginlega mest til að fá í hendur voru ekki til, þeir voru The Understanding og Melody A.M. með Röyksopp. Með þessum diskrum töldum eru það 29 diskar sem ég hef keypt frá áramótum og er ég frekar sáttur með þá frammistöðu.
Jæja, best að fara að leggja mig ætli ég að vakna fyrir vinnuna á morgun.
Btw, ég er orðinn svo lélegur í að finna góða titla á þessi helv… blogg
Nú að spila: Pink Floyd - Corporal Clegg (af A Saucerful Of Secrets í Shine On boxinu auðvitað!).
Dadara. Sjálfstæðisflokkurinn vann borgastjórnarkosningarnar í Reykjavík, og á flestum öðrum stöðum landsins. Ég er satt að segja ekki alveg viss hvað áhrif þetta hefur á mig en ég hugsa að ég hefði kosið þau, á mínum eigin forsendum þar sem ég er bæði samkvæmt political compass, eða var það seinast þegar ég tók það, á því bili sem Sjálfstæðismenn eru á, og skoðanir mínar falla betur að þeim en öðrum flokkum, þó ekki að ég hafi kynnt mér þetta neitt æðislega vel.
Á staðlinum 10 er ég 1.63 til vinstri og 0.67 á íhalds/frjálslyndisstaðlinum og er ég íhaldssamur. Hmm, ég er miðjusinnaðari en mig minnti. Komið gott bara, hef engu fleira að segja frá. Nema því að Robbi kom heim með yndislega sendingu heim frá Bandaríkjunum af geisladiskum fyrir mig. Bendi á þetta í því samhengi.
Nýlegar athugasemdir