MaggiDan.com

  • rss
  • Blogg
  • Kvikmyndir & tónlist
  • Um mig
  • Myndir
  • Hafa samband

Ég fór að spá í gær. Maggi ætti að vera orð yfir o…

28 April 2006 | 8:09

Ég fór að spá í gær. Maggi ætti að vera orð yfir ofurhetjur. „Váá mamma, þegar ég verð stór ætla ég að verða maggi!“ Mér fannst þetta orð bara passa svo vel við þetta hugatak. „Sæl, ég er Maggi og er maggi. *hot smile*“ Svona fer fyrir manni þegar maður lærir of mikið.

Annars uppgötvaði ég krafta Google Video á seinustu dögum en þeir bjóða upp á niðurhal á myndböndum sínum á endingu sem iPod Video styður, þannig að núna er ég með Monsters of Rock tónleikana, Opeth tónleika, John Lennon myndbönd, Eric Clapton tónleika og margt fleira. Auðvitað virkar virkar Podinn eins og ég bjóst við, en heyrnatólin. Vá. Vává. Vávává! Djöfulsins snilld. Hljóðið, bassinn. Allt er fullkomið. Miklu betra en ég bjóst við.

Það var afmæli á þriðjudaginn en þá varð Robbi 22 ára gamall. Svo á miðvikudaginn fór pabbi úr skilgreiningu minni á miðaldra yfir í gamall. Kallinn er sem sagt orðinn 50 ára. Ekki amalegt að eiga afmæli sama dag og verðandi borgarstjóri Reykjavíkur, Vilhjálmur. Það er ekkert nema gott. Svo á Arnar F aka Freysi aka Freysmaster aka Phreysi aka DJ Freys afmæli í dag.

En talandi um borgarstjórann, ég horfði á Kastljósið þegar ég var að fara að sofa og þar voru öll borgarstjóraefni (ehh?) flokkanna og umræðan fór að gamalmennum (pabbi þarf núna að fara að fylgjast með þeim málefnum :) ) og fengu Vinstri Grænir seinastir orðið, konan þar vildi greinilega skora stig hjá þeim því meðan allir aðrir töluðu um gamlingja sem hóp í samfélaginu vildi hún „ekki tala um þá sem hóp þar sem þeir eru jafn fjölbreyttir og restin af samfélaginu“, en svo tók hún öryrkja, innflytjendur og fleiri sem dæmi og talaði um þá sem HÓPA. Þvílík hræsni hjá henni, talandi í svo hrópandi mótsögn við sig og það sem hún hafði sagt um það bil hálfri mínútu áður.

Nú að spila: Sahara Hotnights - Nerves.

Categories
Uncategorized
Comments rss
Comments rss
Trackback
Trackback

« Jæja, þá er Malea komin. Eftir margar spurningar; … Ég hata próf. Ég elska sumarfrí. Ég elska líka nýj… »

4 responses

Uhh... ok svalt! tilhamingju med ellismellinn tinn... og Robba... og

Magga | 29 April 2006 | 5:57

Uhh… ok svalt! tilhamingju med ellismellinn tinn… og Robba… og ipodinn… og heyrnatolin.

Vittu til eg mun gera ter lifid leitt tegar tu verdur loks fimmtugur… :)

i am da dj

arnar f | 30 April 2006 | 15:48

i am da dj

Æi. Hættu þessum stælum og bloggaðu fyrir mig.

tinna | 5 May 2006 | 14:44

Æi. Hættu þessum stælum og bloggaðu fyrir mig.

This site is one of the best I have ever

Anonymous | 9 June 2006 | 13:28

This site is one of the best I have ever seen, wish I had one like this.
»

Leave a comment

You can use these tags : <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Dagatal

April 2006
M T W T F S S
« Mar   May »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930

Nýlegar athugasemdir

  • Arnar Gísli on Íslendingar…
  • Maggi on Íslendingar…
  • Maggi on Íslendingar…
  • Arnar Gísli on Íslendingar…
  • Robbi on Íslendingar…
  • Arnar Gísli on Íslendingar…

Flokkar

  • Blogg (53)
  • Kvikmyndir (13)
  • Sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • Tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Blogg

  • Anna og Robbi
  • Arna
  • Frank & Ösp
  • Frank Gabríel
  • Hekla
  • Hlynur Jón
  • Linda
  • Myndagemsablogg
  • Stebbi
  • Tinna

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Log in
  • Entries RSS
  • Comments RSS
  • WordPress.org

Nýlega hlustað á

Mynd af handahófi

Facebook


Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox