XBOX!

| 20 February 2006 | 11 Comments

Um helgina náði ég hápunkti nördaferils míns. Greipur kom með sitt xbox og Bjarki kom með Star Wars myndirnar. Við klikkuðum þó á því og horfðum á Lord of the Rings í staðinn. Nei, sumir klikkuðu á því líka. Ég einn horfði á Lord of the Rings meðan sumir spiluðu xbox. Þetta sem átti upphaflega að vera Star Wars maraþon fór útí að vera 36 tíma xbox spilun. Greipur kom um 15 á föstudeginum og hann fór um 17 á laugardeginum. Þegar hann og Bjarki voru farnir hringdi Freysi og við spiluðum xbox. Svo þegar klukkan var að verða 21 hringdi ég í Arnar G og hann svaraði kallinu og spilaði xbox með okkur til að verða 01:30. Þar með gafst ég upp og fór að sofa. Ágætis helgi. Ég spilaði xbox í einn sólarhring um helgina, að meðtöldum hléum og LOTR. Geri aðrir betur.

Nú að spila: Jane – A Doorway To Elsewhere.

Category: Uncategorized

About the Author (Author Profile)

Comments (11)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Linda says:

    Stundum hræðist ég hvað verður um þig!

  2. Hekla says:

    Á meðan þú bjóst í X-Box fór ég á þriggja daga fyllerí. Við erum ólík, þú og ég.

  3. Hlynur says:

    Að þetta skuli vera skilt manni…

  4. Robbi says:

    Ég veit ekki hvort er meira ótöff, þriggja daga fyllerí eða X-box maraþon.

    Held þó fylleríið.

  5. Hlynur says:

    Heyrðu íþróttarálfurinn þinn.
    Tlaðu með virðingu um félaga mína.

  6. Hekla says:

    Það er vissulega mjög ótöff á afar ólíkan hátt

  7. Robbi says:

    Maggi, ertu dauður? Haaaallllóóóó????

    Hvernig væri að hætta þessari leti og hunskast til að blogga? Þú eyðir hálfum sólarhringum fyrir framan tölvuskjáinn svo þú ættir alveg að geta séð af 5 mín og hripa nokkrar línur.

  8. Hlynur says:

    Róbert!
    Vertu ekki að trufla hann.
    Hann er að fíla nýja Ziggy Stardust/Devid Bowie diskinn sinn…

  9. freysi says:

    Ég hefði frekar viljað að fara í partýið djók (Now it’s Overhead)

Leave a Reply