Þemavika, xbox og Pink Floyd?

| 17 February 2006 | 7 Comments

Vá, þessi vika var snilld, ólíkt seinustu viku sem gerðist ekki rass í. Í þessari viku var þemavika æi skólanum sem þýðir basically að það var ekki neitt gert.
Mánudagurinn byrjaði vel þegar umsjónarkennarinn svaf yfir sig og við gerðum ekki neitt til 10, við mættum 8:30. Þegar hún kom var ekki neitt gert til 12, og þá tókum við fjórar myndir af okkur sem styttur þar sem þema okkar bekkjar var styttur Reykjavíkur. Þegar það var búið var ekki neitt gert til 14 en þá máttum við lesa í lestrarmaraþoniog eftir það fara heim.
Þriðjudagurinn var meira krefjandi, en þá þurftum við að taka myndir af fjórum styttum Reykjavíkur og lögðum við af stað í bæinn um 10. Þegar við komum þangað fórum við á kaffihús, þar sem ég fékk versta eplapæ sem ég hef nokkurn tímann fengið. En þar sem bærinn inniheldur MR og Kvennó ákvað ég að heilsa uppá Bjarka og Tinnu. Heilsaði ég uppá þau í klukkutíma en þá fórum við að taka myndir af styttunum í Hljómskálagarðinum. Hálftími fór í það, og annar hálftími í að kasta símum uppí loftið og reyna að mynda okkur ofan frá með hjálp timers á símunum. Það var ágætt og fórum við þá uppí skóla. Þá máttum við fara heim.
Miðvikudagurinn var bara leiðinlegur. Við vorum að skrifa um stytturnar og skapara þeirra. Ekki þess virði að segja frá.
En þá kom fimmtudagurinn. Árshátíðardagurinn. Hann var snilld. Mætt í morgnumat í skólanum klukkan 9. Eftir hann átti að verða kynning á öllum verkefnum allra hópa. Það fór fyrir veður og vind þegar allir nemendur skólans létu sig hverfa. Ég fór heim og ég svaf til hálffimm, en maturinn byrjaði fimm. Ég fór í nett kerfi og hljóp í sturtuna og í fötin. Við skutluðumst eftir Lindu og Moniku og fórum uppí Gullhamra. Maturinn var ágætur og skemmtiatrðin mjög góð. Þorsteinn Guðmundsson, Unnur Birna og Jón Sigurðsson komu og voru með atriði. Að matnum loknum var farið í fyrirpartý. Það var stuð og ballið líka. Stuðmenn voru þó ekki stuð, ég hata Andreu Gylfa. En það var dansað og skemmt sér.

Að öðru, á eftir á ég von á Greip með xboxið sitt og Bjarka með Star Wars myndirnar sínar og við ætlum að skemmta okkur. Ójá. Þetta verður stuð. Spurning hvað maður endist lengi án svefns.

Að enn öðru, og eflaust því merkilegasta sem ég mun nokkurn tímann upplifa. Rogers Water, bassaleikari og aðal lagasmiður PINK FLOYD, er að fara að halda tónleika í Egilshöll 12. júní í sumar. Og ég verð þar. Rogers Waters ætlar að flytja okkur Íslendingum allan Dark Side of the Moon diskinn ásamt bestu lögum Pink Floyd. Og ég verð þar. Vá hvað er gaman að segja þetta. Ég verð á næstum Pink Floyd tónleikum. Einum af fimmtán næstum Pink Floyd tónleikum sem verða haldnir þetta sumar. Alls ekki amalegt að fá einn mesta snilling tónlistarsögunar, sem ætlar að halda fimmtán tónleika í sumar, hingað til lands og skemmta okkur. Vá.
Þetta er komið gott.

Nú að spila: Opeth – Patterns In the Ivy

Category: Uncategorized

About the Author (Author Profile)

Comments (7)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Anonymous says:

    Vonandi seljast miðarnir ekki upp á meðan þú ert að bíða eftir svari frá öðrum í sms og “staðfesta” takkinn á miðapöntunarsíðunni bíður eftir að þú takir af skarið!!

    Vildi samt frekar að þetta væri Madonna sem væri að koma.

    Ösp

  2. Viktor says:

    “En þar sem bærinn inniheldur MR og Kvennó ákvað ég að heilsa upp á Bjarka og Tinnu…”
    MAGGI?!
    Ertu KUNTA?! Ég tala aldrei við þig aftur.
    Jú kannski, til að úthúða þér. Skítur.

  3. Magga says:

    Hvad ertu ad kalla vin minn kvenmanskynfaeri!! A eg ad buffa tig? hahh ja eg er vodvafjall!

    Hey Maggi, eg fer a SigurRos tonleika her i Auckland i april!!! Tad er ef eg fae mida… :S

  4. Linda says:

    Magga kemur sko frá hinum megin á hnettinum til þess að buffa þig Viktor!! Do not mess with Magnús!!!

  5. Robbi says:

    Þú kallar þig Pink Floyd aðdáandi en getur samt ekki skrifað nafnið hans Rogers rétt.

    Hann heitir Roger Waters, ekki RogerS Waters.

    Pffff!

    Og já, ég verð þar líka.

  6. Maggi says:

    Þetta var ritvilla, Roger er frekar algengt nafn.. ;-)

  7. Robbi says:

    Þú skrifaðir RogerS tvisvar …

Leave a Reply