Elsku/fjandans tilboð
Hagkaup hefur sína kosti. Til að mynda eyði ég helmingnum af tímanum, þegar ég er ekki sitjandi, í að renna í gegnum tilboðsborðið í tónlistardeildinni. Ég er búinn að kaupa mér þrjá diska sem ég ætlaði að kaupa mér og einn sem ég ætlaði ekki að kaupa mér. Og einn DVD disk. Og ég á eftir þrjá. Vesen að eyða helmingnum af laununum í búðina sem er að borga þér launin. En ég keypti mér núna í dag The Man Who Sold the World með David Bowie og Sándtékk, sem er blandaður diskur sem ég ætlaði ekki að kaupa mér, um seinustu helgi var það Tröllabundin með Eivör Pálsdóttur og Plötu Ársins með Ég. Ég er samt ekki ósáttur við þessi kaup þar sem Tröllabundin og Plata Ársins eru mjög góðar og ég býst við miklu af meistara Bowie. DVD myndin var svo Blow, mynd sem ég hef séð oftar en góðu gamni gegnir (ég held að þetta sé réttur málsháttur hjá mér), og jafnframt einhver besta mynd sem ég hef séð. Þó á ég eftir After the Rain með Ragnheiði Gröndal og Space Oddity með David Bowie og einhvern einn í viðbót. Alls ekki slæmur smekkur í gangi hér gott fólk.
Nú að spila: Jeff Who? – The Golden Age.
Category: Uncategorized



hahh…
Ég hirði allt frítt úr minni vinnu.
Ég er svolítið spentur að vita hvernig þér finnst The Man Who Sold the World diskurinn með meistara BOWIE.
Kona nokkur kemur inn í apótek og biður um Arsenik.
“Og hvað ætlarðu að gera við það?” spyr apótekarinn.
“Ég ætla að eitra fyrir manninn minn því hann er byrjaður að halda
framhjá mér.” “Ég get ekki selt þér Arsenik til þess,” segir
apótekarinn,
“jafnvel þó að hann sé farinn að halda framhjá þér.” Þá dregur konan
upp
mynd af manninum sínum í miðjum samförum við konu apótekarans. “Ó,”
segir
apótekarinn, “ég gerði mér ekki grein fyrir því að þú værir með
lyfseðil.”
Hahahahahahahaha!!
After the rain er góður diskur, keypti hann um jólin og er nokkuð sátt
Heppinn…
Gaur, bloggaðu! Það er árshátíðarvika hjá þér þannig að þú ert nánast ekkert í skólanum. Þú getur alveg skrifað nokkrar línur fyrir okkur bloggþyrstu aðdáendur.
Heyr, heyr
Og talandi um Geit.
Hér færðu ASNA sögu.
http://www.metacafe.com/watch/1337/donkey_lovin/