Vá hvað það er skrítið að hugsa um að þurfa að kve…
Vá hvað það er skrítið að hugsa um að þurfa að kveðja besta og elsta vin þinn í heilt ár.
Manneskja sem þú hefur þekkt frá því þú fæddist og leikið við og talað við frá því þú fæddist. Bahhh, þetta er ömurlegt.
Engin Magga á áramótunum, engin Magga þegar mamma fer í kaffi til “Möggu”, engin Magga aldrei. Í fokking heilt ár.
Að aðeins glaðlegri hlut.
Prump brennur í alvörunni, það gerir það ekki bara í bíómyndum.
Ég þurfti sem sagt að prumpa í gær, og sagði það auðvitað upphátt, og Bjarki sagði að það væri kveikjari inni í eldhúsi. Auðvitað var ég til í þetta. Ég girti niður um mig og hann lét kveikjarann bak við mig.. Og ég lét gossa. Fyrst heyrði ég bara í mér að leysa vind, svo ffffff, eins og þegar maður kveikir í gasi, og svo smá svona hljóð eins og þegar maður brennir sinu. Og svo kom lyktin, ég brenndi nokkur hár. Sem betur fer var skaðinn ekki sjáanlegur á mér, en ég held að Tinna og Maggi Ben gætu þurft áfallahjálp.
Þetta var vel skemmtilegt.
Nú að spila: Sigurrós – Með Blóðnasir.
Category: Uncategorized



Þetta var frábært, viðburður mánaðarins.
Ég ætla aldrei að tala við þig aftur.
Ég held að þú ættir að tala við einhvern FULLORÐINN og ath. hvort það sé ekki hægt að gera eitthvað fyrir þig áður en það verður of seint!!!
Ég gæti þurft margra ára sálfræðiaðstoð. Ég mæli með því sama fyrir þig.
Mamma hans Magga er þegar byrjuð á meðferð fyrir hann.
Hahahahaha… þetta verð ég að sjá einhverntímann!
Láttu heyra í þér og sendu mér e-mail!!!!
Sjáumst síðar félagi…
Þú hefðir átt að kveikja í öllum rasshárunum asninn þinn!
Hahahahaha þú ert ágætur Maggi, þú ert ágætur.
Gaur! Hvað er að þér!?? Annars hef ég heyrt að þetta sé hættulegt með p…. og kveikjara. Eldurinn geti borist inn og það sé frekar dapurt.
Magga er nú ekki að fara til tungslins Maggi. Hún er “bara” að fara hinumegin á hnöttinn. Hey pældu samt í því ef hún væri að fara til tunglsins þá gætir þú fræðilega séð hana en þú sérð ekki í gegnum jörðina. æ, þetta var of súrt. Annars er Magga aðeins í email, blogg eða sms fjarlægð.
Já nema það að hún má hafa sem minnst samband fyrsta mánuðinn =( Hún á helst ekki að vera á netinu eða neitt… Þetta verður erfitt!
Ég er farin að sakna hennar… en við getum huggað okkur við það að hún mun skemmta sér vel þarna útí Nýjó
Lengi lifi Magga!
Kv.
Móna
Haha, viðurstyggð geturðu verið
°Have fun Magga segi ég nú bara..
Og þú bara endilega varst að prófa ða kveika í prumpi heima hjá mér!!?
Ég get aldrei kveikt á kerti með þessum kveikjara aftur…
gvuð!
Hmmmmm, hef einhvern veginn á tilfinningunni að Magga eigi ekki eftir að sakna þín jafn mikið…. alla vega ekki prumpsins!!
Ég sakna Magga mús, sem var lítill og ljúfur drengur
Hvaaaða, hvaða, hvaða, Maggi er lítil og ljúf mús enn þann dag í dag.
Hann er bara lítil og ljúf mús sem prumpar tíðum.