UUUGGGGHHHHHH
29 January 2006 | 14:36Guð hefur greinilega klikkað í hugmyndafræði sinni meðan hann hannaði mig. Lappirnar á mér eru handónýtar eftir helgina. Lengstu helgi lífs mín. Að vakna klukkan níu um helgar er eitthvað sem maðurinn á ekki að gera, það er heilagt og óvirðing fyrir helginni. Ég sveik helgina. Ég vann í nýju vinnunni minni. Nýju mest pirrandi vinnunni minni í heimi.
Ég misskildi konuna aðeins, ég sé um leikfangadeild og svo fékk tónlistardeildin að fljóta með. Þar sem Krakkabíó er bilað henda foreldrum börnunum sínum í leikfangadeildina meðan þau versla, mér til ómældrar ánægju. Ég fékk til að mynda að hlusta á “kakakakakakakakakakakakakaka” hljóð úr dótabyssu í allan dag ásamt “tjútjútjú” úr Star Wars byssum. Það er samt eiginlega aukaatriði miðað við Engilfríði andarunga, þriggja mínútna atriði sem er spilað aftur og aftur og aftur og aftur.
Kyssi, kyssi, kyssi, kyssi, knúsi, knús. Við endurnar erum ótrúlega sérstakar, nánast alveg einstakar.
Deyðu Engilfríður.
Svo eru trommur, Stubbarnir, píanó, munnharpa, harmonikka og maaargt fleiri sem gefur frá sér skemmtileg hljóð.
En þrátt fyrir að þetta hafi verið lengsta helgi sem ég hef upplifað er ég núna 15.000 krónum ríkari en á miðvikudaginn. Ljúft það. Bara um það bil tíu helgar í viðbót og þá er fartölvan komin. Farinn að læra.
Nú að spila: Maus – Kerfisbundin þrá.






Maggi, hvað kosta Stubbarnir á DVD í Hagkaup? Hvað færðu mikinn afslátt á CD og DVD?
Man ekki hvað þeir kosta á DVD.
Annars fæ ég held ég 10% af öllu eftir mánaðarmótin.
Hahahahahaha…
Kallinn kominn í klemmu!
Ég varaði þig við Hagkaup.
10% afslátt? Úff þú verður bara ríkur af því að versla fyrir mömmu á þínum afslætti og selja henni á fullu verði. Múhahahaha!!!
Nei hann verður ekki mikið ríkur krakkaormurinn. Nú er hann farinn að vinna svo hann er ekkert of góður að borga eitthvað heim og það varður þessi 10%. Nú þarf hann nefnilega að fara að verzla með þeirri gömlu. Ha ha ha….
Þú áttir að fara á sjóinn. Þá hefði þér nægt að henda í hana Ýsu endrum og eins….
Þetta er andinn magnús, taka eina helgi í einu!
Vá hvað ég vorkenni þér með engilfríði!
hahahaha… endurnar, þær eru brill!!!
En Maggi minn.. þú færð ekki afsláttinn þinn fyrr en eftir þrjá mánuði. Ég veit Hagkaup getur verið pain. En hugsaðu bara að þetta gæti verið verra, þú gætir verið að mæla brjóstahaldara-stærðir hjá gömlum konum.
Frank þú mátt nú allveg fá eitt af mínum afsláttarkortum.
Ótrúlegt, Frank bróðir er farinn að horfa á Stubbana. Hvert er heimurinn að stefna???
Ef allir horfðu á Stubbana væri þetta betri heimur. Sjáðu hvað FGM sem ELSKAR Stubbana er saklaus!
Það eru engin leiðinleg hljóð í minni vinnu, bara hugljúfir tónar sem koma frá x-inu…
Að undanskildum nokkrum kvörtunum í gamla fólkinu, en þá er bara að hækka í x-inu.
Vera feginn að vinna ekki við að mæla brjóstahaldarastærð hjá gömlum konum ? Fyndið, það er einmitt það sem ég vann við hjá Debenhams… Leiðindi, ég sagði upp í gær!
Múhahahaha…
Svona er þetta… gamlar konur flassa mann allstaðar!!