Sigurrós

| 28 November 2005 | 24 Comments

Váááá. Þessir tónleikar voru rosalegir!

Þegar ég kom labbandi upp stúkuna og sá sætin okkar vissi ég að ekkert gæti eyðilagt kvöldið. Þetta voru sæti á besta stað, nákvæmlega í miðri stúkunni.

Amina hituðu upp með tregafullri tónlist og svo virtist vera sem þær lögðu sig fram við að spila á framandi hljóðfæri, og tek ég þá sög sem dæmi. Þær voru góðar þótt þetta sé ekki minn tebolli og var maður vel tilbúinn að takast á við Sigurrós.

Sigurrós byrjuðu á Takk… sem fór svo yfir í Glósóla. Mjög góð byrjun á tónleikunum, kraftmikil lög sem flestir kannast við. Þeir voru með gott lagaval; flest lögin voru af Takk, sem er skriðinn í að vera uppáhaldsdiskurinn minn með þeim.
Þeir eru mjög kraftmiklir á sviði, allt öðruvísi en ég bjóst við. Þeir voru með Amina með sér ásamt 9 manna lúðrasveit.
Svo þegar allir fóru af sviðinu voru þau, ég er að tala um Amina líka, auðvitað klöppuð upp. Þá tóku þau þrjú lög af Von, ég kannaðist ekki við neitt þeirra en þrátt fyrir það var seinasta lagið toppurinn á tónleikunum. Alla tónleikana var í gangi myndvarpi sem beindist að veggnum bakvið sviðið sem sýndi alls konar myndbrot, m.a. krakka, dúfur og radíussendi. Oftar en ekki gleymdi ég mér við að horfa á það og áttaði mig á að ég tók ekki eftir því sem var í gangi á sviðinu sjálfu.

Ég held hreinlega að þetta hafi verið fullkomnir tónleikar. Það er ekkert sem ég get sett útá.

Nú að spila: Stars of the Lid – Austin Texas Mental Hospital : Part 1.

Category: Uncategorized

About the Author (Author Profile)

Comments (24)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Bjarki says:

    Þetta voru rosalegir tónleikar.

  2. Þorsteinn says:

    Ókei hljómar illa … pointið er að ég var eins og kaktus vegna gæsahúðar.

  3. Þorsteinn says:

    Vægast sagt. Hefði getað drepið mann með líkamshárum.

  4. Maggi says:

    Hefði getað drepið mann með líkamshárum.

    Baaaaahahahahahahahahahahahaha.

  5. Robbi says:

    Quote: “Þeir eru mjög kraftmiklir á sviði, allt öðruvísi en ég bjóst við.” Je right, Sigurrós kraftmiklir … HAHAHAHAHA!

    Sigurrós hafa alltaf verið, eru og munu alltaf verið vælukjóar og ekki kraftmiklir fyrir 5-aura. Sigurrós sökka alvarlega, leiðinlegri vælutónlist hef ég ekki heyrt. Björk tekur þá í nefið og þá er mikið sagt.

    Það er skemmtileg saga að segja frá því að diskurinn Ágætis Byrjun fékk alveg rosalega mikið umtal á sínum tíma og þvílíka dóma. Þannig að ég ákvað að fá mér hann. Ég hlustaði á diskinn einu sinni og hef nákvæmlega engan áhuga að hlusta á hann aftur né einhvern annan disk með þessari ofmetnu hljómsveit.

  6. Viktor says:

    Já, jújú, það er alltaf athyglisvert sjónarmið að hlusta á nokkur lög með hljómsveit og afskrifa þannig alla tónlist sem kemur frá viðkomandi hljómsveit og hljómsveitina sjálfa án þess að hafa meiri grundvöll.

    Sér í lagi ef maður telur sig raunverulega hafa þar með efni á að rakka niður umrædda hljómsveit og búast við að tekið sé mark á manni þrátt fyrir þröngsýnt og barnalegt viðhorf.

    Mannskepnan er áhugaverð.

  7. Viktor says:

    Og af hverju í gerilsneyddri gæsamykju þráast þetta kommentakerfi við að inna af hendi þá fjölþjóðlegu stafsetningarvillu að skrifa nöfn kommentara með litlum staf?!

  8. Hekla says:

    ágætt band?

  9. Robbi says:

    Viktor, ekki vera með einhverja leiðinlega kaldhæðni og reyna að leggja mér lífsreglurnar.

    Flestir, ef ekki allir, byggja álit sitt og dóma sína á tónlist, þáttum, kvikmyndum, tölvuleikjum og flestu sem viðkemur afþreyingu eða list á “fyrstu tilraun” eins og var raunin með mig og Sigurrós. Ég hlustaði á Ágætis byrjun og líkaði illa. Ég hef heyrt nokkur lög af þriðju plötunni sem hafði ekkert nafn ef ég man rétt og þau lög sem ég heyrði af þeirri plötu voru í sama dúr og af Ágætis byrjun, sem sagt bara eitthvað væl og búllsjitt sem fer illa með heilann í mér. Ég heyrði einnig nokkur lög í útvarpinu af Takk þegar hann kom út og þá sannfærðist ég endanlega að Sigurrós mun ekki geta komið almennilegri tónlist frá sér.

  10. Robbi says:

    Þú mátt kalla þetta barnalegt viðhorf eða þröngsýni, mér er sama, en ég veit hvar ég stend í tónlist og ég segi með stolti að Sigurrós eru ömurlegir. Ég veit um böns af fólki sem finnst það sama. Þeirra tónlist er mjög sérstök og alls ekki allra.

    Ef það gerir mig og alla hina sem fíla ekki Sigurrós, verri manneskjur, þá verður svo að vera.

  11. Maggi says:

    Ég get ekki verið alveg sammála þarna. Mér fannst Takk vera mjög auðveldur, langt hlustendavænastur af diskunum þeirra.
    Ég fíla () ekki mikið, en Ágætis Byrjun um Takk eru frábærir. Takk meira að segja það góður að ég hef varla látið Ágætis Byrjun í spilarann síðan ég fékk Takk.

  12. Þorsteinn says:

    Robbi, væri ágætt ef að þú settir “mér finnst” á undan þessum fullyrðingum. Sigur Rós eru alls ekki ömurlegir.
    Annars þarf að sjálfsögðu að melta tónlistina til að ná henni. Ein hlustun er aaalls ekki nóg. Samt sem áður ef að þú fílar þetta ekki og sérð enga leið til þess að þú munir nokkurn tímann gera það, þá minni ég aftur á “mér finnst”.
    Annars jú … þeir voru kröfugir … mjög. Varst þú á staðnum?
    Ekki gott þegar litli bróðir manns tekur fram úr manni í þroska.

  13. Robbi says:

    Ahh pirrandi … :@ Það er alltaf þannig að ef maður tjáir sig á netinu þá er maður alltaf að fullyrða/alhæfa ef maður skrifar ekki “mér finnst” eða “að mínu áliti” því auðvitað er það mín skoðum að einhverjir/eitthvað séu lélegir. Ég þarf ekki að taka það fram. Ég get ekki fullyrt að t.d. Sigurrós séu lélegir því allavega þessir 5 þús + einstaklingar sem voru í Höllinni fíla þá, hvort sem mér líkar það eða ekki.

    Hvernig er annars hægt að fullyrða að einhver hljómsveit sé ömurleg? Það er ekki hægt, því það er skoðun hvers og eins. Þetta er eins og ég segði: “Ojj! Harry Potter er leiðinlegast mynd/bók í heimi!” er EKKI fullyrðing heldur MÍN skoðun og það er algjör óþarfi að taka það sérstaklega fram því, ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ ALHÆFA SKOÐANIR!! Kapísh??

    Quote: “Ekki gott þegar litli bróðir manns tekur fram úr manni í þroska.” 10 fyrir tilraun til kaldhæðnis, 0 fyrir húmor.

  14. Þorsteinn says:

    Sjálfsögðu ekki hægt að alhæfa skoðanir, en ertu ekki að gera það með því að segja beint “sigur rós eru ömurlegir”? Með þessu segir þú að þeir séu það, það er ekki þitt álit, þeir bara eru ömurlegir.
    Ég hins vegar geri mér fullkomlega grein fyrir því að þú varst ekki að meina þetta svona. Það bara fer veeel í taugarnar á mér þegar fólk segir svona.
    “Ekki gott þegar litli bróðir manns tekur fram úr manni í þroska.” – setti þetta nú aðallega til þess að fara í taugarnar á þér, það tókst.
    Hins vegar er ég sammála viktori í því að það er barnaleg lykt af sumum af þessum commentum þínum hér.

  15. Robbi says:

    Ég nenni ekki að eyða tíma í vitleysinga eins og þig, hef betra við tímann að gera. Seeya.

  16. Viktor says:

    Ég var ekki að leggja þér lífsreglurnar, einungis að benda á hvað mér þætti athugavert við staðhæfingar þínar.

    Sjálfur fíla ég Sigurrós ekki sérlega mikið, fór ekki á tónleikana, en mér finnst hinsvegar Takk þokkalega góður diskur. Mér finnst hann öðruvísi en hitt stöffið þeirra, mun meira heillandi.

    Þú hinsvegar hlustaðir einu sinni á fyrsta diskinn þeirra og dæmdir það allt rusl og að tónleikarnir hefðu ekki geta verið kraftmiklir. Þú hefur einfaldlega ekki burði í að dæma það og ég hef fullan rétt á að benda þér á það.

    Fyrir utan það er rétt hjá Dodda að fyrsta hlustun á Sigurrós segir fátt, upprunalega dótið þeirra fellur meira í kramið hjá mér þegar ég heyri það meira.

    Þú hefur fullan rétt á þinni skoðun á tónlist en þú varst ekki á tónleikunum og þar af leiðandi þegar þú reynir að rakka þá niður kemur það hálfkjánalega út.

    Sjálfum fannst mér “kraftmiklir” furðuleg lýsingarorð í samhengi við Sigurrós en ég er opinn fyrir þeim möguleika að þeir hafi verið það, enda var ég ekki á staðnum og get ekkert fullyrt um það.

    Svo finnast mér komment þín á þessari síðu einkennast af barnaskap og hroka oft á tíðum og vil ég í tilefni af því benda þér á vafasamt málfar í sumum þeirra; sbr “né einhvern annan disk með þessari ofmetnu hljómsveit.” á að vera “nokkurn annan disk”.

  17. Robbi says:

    Ja hérna, kommentin mín einkennast af barnaskap og hroka. Það er nú aldeilis.

    Það er merkilegt hvað 16 ára strákpjakkur eins og þú lítur stórt á sig. Mér þætti gaman að sjá hvort þú þorir að tala svona við mig í eigin persónu. Ég held nefnilega ekki.

    Í þau fáu skipti sem ég kommenta á þessa síðu þá er ég yfirleitt að kommenta á tónlistarpistla sem Maggi hefur skrifað og er þá að koma með álit mitt á ákveðinni hljómsveit eða lagi, sbr þessa færslu. Þú ættir að skoða fyrrnefnd komment frá mér á þessari síðu og endurskoða orð þín því ég tel mig ekki hafa komið með barnaleg komment. Kannski hrokafull … ég get staðið undir því en ekki barnaleg.

    Síðan vil ég benda þér á að slaka aðeins á að vera háfleygur í ritmáli. Ég vona svo sannarlega að þú talir ekki svona því þá vorkenni ég þínum nánustu.

  18. Maggi says:

    Svona er mín staða,

    Ég styð Viktor og Þorstein í Sigurrós málinu. Athugið, þetta er stórt skref fyrir mig, EN suma tónlist þarf að melta. Sigurrós flokkast undir þá tónlist, ég hugsa að fæstir fíli hana við fyrstu hlustun en það þýðir samt ekki að segja að hún sé léleg. Það hef ég lært af reynslunni.

    Hins vegar er “mér finnst”. Sjálfum finnst mér það vera frekar tilganslaust að setja “mér finnst” þegar maður er að segja eitthvað. Eins og t.d. að Sigurrós sé léleg. Auðvitað fer enginn að staðhæfa að Sigurrós sé léleg, það er bara hans skoðun. Ég sá þetta bara sem aukaatriði hjá ykkur til að ná að klekkja á honum, þar sem að þið vissuð hvað hann var að meina.

  19. Hekla says:

    Æji ég veit ekki…
    Þessar alhæfingar fóru nokkuð í taugarnar á mér þegar ég las þetta þó ég vissi fullkomlega að Robbi væri bara að segja sína skoðun. En það að setja ekki “mér finnst” fyrir framan skoðun finnst mér vera fullyrðing og greinilega flestum hér líka. Mér finnst kommentin þín hér, Robbi, flest einkennast af hroka. Annars mátt þú svosem skrifa það sem þú vilt fyrir mér, mér sýnist á öllu að þér sé hvort sem er skítsama hvað öllum hér finnst um það.

  20. Þorsteinn says:

    Aukaatriði til að klekkja á honum?
    Þetta fer í taugarnar á mér eins og hjá heklu. Hef meira að segja rifist við þig um þetta … minnir mig. Svo var robbi eiginlega að mæla á móti sjálfum sér með því að segja í stórum stöfum “það er ekki hægt að alhæfa skoðanir” en gera það svo sjálfur oft og mörgum sinnum.

    “Mér þætti gaman að sjá hvort þú þorir að tala svona við mig í eigin persónu. Ég held nefnilega ekki.”
    Þetta finnst mér lélegt og já … jafnvel barnalegt. Ófær um rökræður án þess að blanda líkamsstærð og styrk inn í þær ?

  21. Viktor says:

    Bíddu nú hægur.

    Ertu að djóka?

    “Mér þætti gaman að sjá hvort þú þorir að tala svona við mig í eigin persónu. Ég held nefnilega ekki.”…? Ég er viss um að þú ert voða sterkur og allt það en hverskonar endemis óþolandi matsjómatsjó raus er þetta?

    Svo furðarðu þig á því að “16 ára strákpjakkur” vogi sér að yrða á þig öðruvísi en í algjörri lotningu… svo sannarlega eru þetta æpandi dæmi um barnaskap og hroka… tjah, svo maður gleymi því ekki að þú reyndir að rakka mig niður fyrir að reyna að vanda málfar mitt á netinu?

    Reyndar er ég sammála að það er nokkuð gefið mál að maður sér að segja sína skoðun í þessum málum, enda er maður eiginlega alls ófær um annað, stundum skiptir samt máli hvernig maður orðar þetta.

    En hvað kemur næst? Ætlarðu að metast um hvor okkar sé með stærra typpi? Mana mig til að “take it outside”? Lýsa því yfir að þú ætlir að lemja mig í frímínútum?

    Öff…

  22. Robbi says:

    Þegar ég skrifaði hvort þú þorðir að tala svona við mig í persónu þá átti ég ekki við að ég myndi lemja þig EF þú þorðir því, heldur í rauninni hvort þú myndir þora að tala svona við mig eye to eye. Bara svona venjulega. Myndirðu þora að segja við ókunnugan mann augnliti til augnlitis að hann sé barnalegur og hrokafullur eða þorirðu aðeins að gera það á netinu? Mig langar að vita það. Það er nefnilega annað mál að horfa í augu á manneskjunni og segja svona hluti. Það geta allir rifið kjaft á netinu.

    Ef mig langar að lemja þig, þá fer ég einfaldlega heim til þín. Ég hef engan áhuga á að lemja þig eða nokkurn annan mann (þó ég hafi stundum lamið Gauta, haha). Þetta voru engir matsjómatsjó stælar, leiðinlegt að þú túlkaðir það þannig. Það átti ekki að koma þannig út.

    Og varðandi 16 ára strákpjattinn, ég veit þú heldur að þú sért rosalega þroskaður og gáfaður, en ég get sagt þér að þú ert það ekki. Jú, miðað við jafnaldra þá ertu það eflaust, en ég get lofað þér því að þú veist ekki neitt, ennþá. Ég hélt ég væri orðinn fullorðinn á þínum aldri og hefði rosalega mikið vit á öllu sem væri að gerast í heiminum, en það var rangt af mér að halda það. Þessi ár sem maður er í framhaldsskóla, þroskast maður rosalega og lærir fullt af nýjum hlutum bæði varðandi lífið og mann sjálfan. Það munar 5 árum á milli okkar Viktor (Þorsteinn taki þetta til sín líka) og á milli okkar munar heilmikið.

    Ekki reyna að sannfæra mig um annað. En allavega, ég hef annað við tímann að gera en að eiga í tilgangslausu rifrildi sem er löngu komið út fyrir upprunalegt efni sem voru Sigurrósar tónleikarnir.

  23. Hekla says:

    Er þetta allt í einu komið út í keppni um líkamlegan og andlegan þroska ? Gee… stákar…

  24. Viktor says:

    Nújæja, við höfum kannski misskilið þessa spurningu þína.

    En vissulega eru netsamskipti öðruvísi en venjuleg samskipti en ég mundi líklega í “real-time” rifrildi benda þér á ef mér hefði þótt þú jafn barnalegur og hrokafullur og mér þótti þú á köflum í þessu rifrildi.

    Svo að ég býst við að svarið sé já.

    Annars geri ég mér fyllilega grein fyrir að það er fullt sem ég veit ekki og að ég á enn eftir að taka út heilmikinn þroska, þú sennilega líka. Ég hélt aldrei öðru fram eða gaf einu sinni annað í skyn, það sjónarmið mitt virðist alfarið vera sprottið upp frá þér. (semsagt, þú virtist halda að ég hefði það sjónarmið)

    Hinsvegar áskil ég mér rétt til að taka þátt í samfélaginu og umræðum eins og venjuleg manneskja þangað til ég rekst á þetta þekkingarleysi mitt.

    En aldur segir heldur ekki allt, hann er góð viðmiðun, en það er helst til ólógískt að gera ráð fyrir því að þú, eða nokkur annar, sért sjálkrafa gáfaðari en ég og Doddi einfaldlega vegna þess að þú sért eldri.

    Þó var þetta svar þitt mun yfirvegaðara og þroskaðara en önnur innleg þín í þessa umræðu hafa verið að mínu mati og er það hið besta mál.

    Adios.

Leave a Reply