’85

| 7 November 2005 | 5 Comments

Ég held ég hafi sjaldan verið jafn feginn að lifa á árinu 2005.
doddi!Þvílík og önnur eins tíska. Oj. Fjólubláir gallar, legghlífar, griflur og moon boots, að ógleymdu hryllilegu hárinu. Þið sem eruð ekki búin að fatta það, þá er ’85 vika í gangi í skólanum.
Búið er að breyta einu skólahúsinu í Tímavél, en það er ansi töff. Spiluð eighties tónlist, þó svo að meiri hlutinn sé rusl komu fram góð lög, og búið er að líma upp á alla vegi hússins brúnan pappír sem búið er að mála myndir á, hápunkti áratugarins, svo sem hljómsveitarnöfn, kærleiksbirnina, He-Man, Dr. Pepper, Ghost Busters og fleira. Svo er diskóljós í gangi þar allan daginn. Greinilega lögð mikil vinna í þetta. Nemendaráðið fékk einnig klippinema úr Iðnó til að vera í steustofunni með ókeypis möllet-klippingar, fyrir þá sem vildu.
Eini gallinn er að þetta er rangur áratugur. Hefðu þau farið aftur um 10 ár hefðu þau fengið mun meiri viðbrögð hugsa ég. Hver vill ekki vera eins og John Travolta í Saturday Night Fever? Sá áratugur var snilld, flott föt, flott tónlist. Ég hefði virkilega reynt að kaupa mér jafn eitursvöl jakkaföt og skyrtu og John var í í Saturday Night Fever. En ekki er allt á kosið og um að gera að reyna að skemmta sér vel, það er samt smá bögg. Það á enginn í kringum mig eighties föt, og ég get ekki látið sjá mig í diskókeilu í kvöld án “flotts” fatnaðar. Spurning um að kíkja í Spútnik á morgun.

Category: Uncategorized

About the Author (Author Profile)

Comments (5)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Bjarki says:

    Þú mátt fá svona skrjáfsamfesting hjá mér.

  2. Robbi says:

    Hell ya!

    http://www.goldenstateautographs.com/photographs/images/travoltajohnsnfever.jpg

    Þetta er málið! Diskó var almennilegt, ekki leiðinlegt bílskúrsrusl frá pönktímanum.

    http://www.imissthe80s.com/images/albumtheme.jpg

    Hvort er flottara?!

  3. Hlynur says:

    Ég held að þessi hryllilega tíska árið 1985 sé skömmini skárri en tískan í dag… og þó… jú… nei
    Ojbara. Þetta er jvfn viðbjóðsleg tónlist og fatatískan… Ég æli..

  4. Maggi says:

    Duran Duran tónlistin er hryllingur, ég var aðallega að tala um tónlist á borð við David Bowie, Queen og Guns’n'Roses.

  5. Frank M says:

    Tískan fyrir 20 árum var fyrir unglingum þá eins og tískan núna er fyrir þér. Ógeðslega flott og töff. Strákar með heysátu og strípur, stelpur með uppsettan topp og rakaðar hliðar. Samfestingar, snjóþvegnar gallabuxur, doppóttar peysur.
    Maggi spurðu Jón Vilberg um þetta… hann var 14 ára ’85.

Leave a Reply