Dúndurfréttir
Vá! Vá! Vá! ÞvÃlÃkir tónleikar!
Ég fór á tónleika með hljómsveitinni Dúndurfréttum à gærkvöldi, 26. nóv; sem coverar Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple og Uriah Heep, og voru þetta Pink Floyd tónleikar. Tilefnið var 10 ára afmæli Dúndurfrétta, taka þeir 4 tónleika à þvà tilefni; 2 Pink Floyd og 2 með Led Zeppelin, Deep Purple og Uriah Heep lögum. Þar sem ég vissi ekkert um hvernig þeir væru á tónleikum fór ég með það à hausnum að þeir væru örugglega ekkert sérstakir, en annað kom à ljós.
Ég hefði ekki getað beðið ef betra lagaval, þvà þeir völdu nánast bara lög sem eru à uppáhaldi hjá mér. Þeir byjuðu tónleikana á mÃnu uppáhaldslagi, Shine On You Crazy Diamond, og ég var með gæsahúð allan tÃmann sem það var spilað, og það er ekki stutt. Fyrir hlé voru þeir mest með lög af The Wall, en hann er uppáhaldsdiskurinn minn og var ég brosandi og slefandi yfir þessu, ásamt Time minnir mig og einhverjum öðrum lögum. Þarna áttaði ég mig á þvà að ég kann ekki næstum þvà nöfnin á öllum Pink Floyd lögunum, minnið aðeins að bregðast manni.
Svo eftir hlé byrjuðu þeir á tveim lögum af Animals, Pigs On the Wing og Dogs, og hefur hann verið mest spilaðasti diskurinn hjá mér á árinu hugsa ég, þannig að ég var mjög sáttur. Tóku þeir Dogs það vel að ég hallaði mér aftur, lokaði augunum og fÃlaði mig sem ég væri à alvörunni á Pink Floyd tónleikum. Að þvà loknu tóku þeir DSOTM syrpu þar sem þeir spiluðu öll nema 2 lög af honum, enda búnir að taka Time og Money, minnir mig.
Strákarnir à Dúndurfréttum eiga skilið mikið hrós fyrir frábæra tónleika. Ég labbaði út à utanvið mig, hugsandi um hvað ég komst nærri þvà að upplifa Pink Floyd live.
Og annað, fyrirgefiði hvað þetta er sérstakt blogg. Hafði ætlað mér að skila þessu inn á huga.is sem grein og hafði hana þvà frekar ýtarlega.
Nú að spila: Pink Floyd – Sheep.
Category: Uncategorized



Sammála þvÃ, þetta voru flottir tónleikar. Ég þekkti ekki lögin af Animals og fannst þau þess vegna sÃst, kannski vegna þess að þau voru samtals 20 mÃnútur.
Ã� ég að trúa þvà að það sé ekki vÃsað à http://www.sendibill.com hjá þér?