Nýtt blogg og klukk

| 26 September 2005 | 10 Comments

Jæja, er ekki fínt að byrja nýja síðu með klukksvörum? Ösp klukkaði mig og sá ég þar með frábært tilefni til að stofna nýja bloggsíðu. Mig hefur langað til þess lengi en hreinlega ekki nennt því. Ég ætla að reyna að vera virkur hérna, en er ekki viss um að það gangi eftir.. :P
En allavega, hér kemur klukkið:

1. Þegar ég var 5 ára gamall sat ég á klósettinu í góðum fíling þegar ég heyri eitthvað detta. Þegar ég lít niður sé ég tönn á gólfinu, ég sleiki góminn og hvað finn ég? Það vantar eitt stykki tönn þangað, svo mikill var rembingurinn. Fullorðinstönnin kom svo ekki fyrr en ég varð 9 ára.

2. Ég er með um það bil 30 ör á hausnum eftir hin ýmsu slys sem hafa átt sér stað þar. Ekki nóg með að ég hafi fengið 30 sinnum gat á hausinn heldur hef ég fengið heilahristing 4 sinnum.

3. Þó þetta viti flestir set ég þetta samt hér: Ein af uppáhaldstónlistarmönnunum mínum í 7. – 8. bekk var Britney Spears. En þó svo að ég hlusti ekki á hana lengur á ég það til að hlusta á Atomic Kitten eða Girls Aloud, enn þann dag í dag. Ég skammast mín ekki fyrir það. :D

4. Ég HATA Jamie Lee Curtis af öllum lífs- og sálarkröftum. Aftur á móti ELSKA ég bubbles og klára hann að minnsta kosti 2x á dag..

5. Mér hefur tekist að festa mig í hinum ótrúleguast hlutum; ég festi hausinn á mér í eldhúsljósinu þegar ég var 5 ára, ég hef fest mig tvisvar í þvottavél, sitthvorri vélinni þó og einu sinni festi ég mig í þröngri ruslatunnu og sat fastur þar til Robbi kom til bjargar.

Vona að ég hafi komið ykkur á óvart með þessu.

Category: Uncategorized

About the Author (Author Profile)

Comments (10)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Hekla says:

    Afhverju hataru Jamie Lee Curtis??

  2. Maggi says:

    Ég er ekki alveg viss, en ég bara hata hana.

  3. Anonymous says:

    Frábært Maggi!! Kom mér allt á óvart nema örin á hausnum og auðvitað Britney, man ennþá eftir öllum plakötunum sem voru upp á vegg hjá þér.

    Ösp

  4. Robbi says:

    Robbi to the rescue!!

    Jamie Lee Curtis er nú alls ekki svo slæm, hún leikur hvort sem er ekki í mörgum myndum þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur. Hins vegar þær leikkonur sem ég HATA eru vinsælar og leika í mörgum myndum, hin forljóta, hæfileikalausa og endalaust leiðinlega Cameron Diaz og svo horbjóðurinn hún Liv Tyler.

    Britney er hætt að vera skemmtileg og kúl en elskurnar í Atomic Kitten eru og verða alltaf yndislegar! Sérstaklega Natasha! *Kiss*

  5. Þorsteinn says:

    Aumingja maggi átti aldrei séns …

  6. Bjarki says:

    Liv Tyler er flott… ekki bögga hana.

  7. Hekla says:

    Liv Tyler er ógeðslega böggandi leikkona!!! Sáuði myndina þarna með henni og Ben Affleck ? Hún eyðilagði myndina fyrir mér!!!

  8. Linda says:

    hahaha vissi þetta nú með Britney Spears og þvottavélina.. En ég er sammála Dodda Aumingja maggi átti aldrei séns..

    Og ég veit að þessi Atomic Kitten della kemur frá Robbaog ég verð að viðurkenna mér finnst það frekar fyndið

  9. Magga says:

    HAHAHA…

    vá ég var allveg búnað gleyma þessu með Britney!!

    Bravó!

  10. arnar f says:

    maggi tjekkaðu á http://www.epitonic.com

Leave a Reply