MaggiDan.com

"Vinstri grænir vilja frið á Gaza en ófrið á Íslandi."
  • Blogg
  • Kvikmyndir
  • Um höfund
  • Myndir
  • Uppfærslur
  • Hafa samband

Avatar 3D (2009)

2 January 2010 | 19:00

Avatar (2009)

Ég fór á Avatar á miðvikudaginn. Eftir að hafa séð trailerinn fyrir myndina í bíó fyrir löngu, heillaðist ég ekki. Fannst þetta hálft tæp hugmynd og 3D hafði ekki bætt kvikmyndaupplifun mína (hafði séð áður Journey to the Center of the Earth, My Bloody Valentine og Fly Me to the Moon). Ég var þetta vegna mjög skeptískur á að þetta væri eitthvað sem mig langaði að sjá í bíó, upp á þrívíddina að gera.

Svo heyrði ég bara góða hluti um myndina, frá öllum. Allir lofuðu útlitið og þegar ég innti þá eftir svörum um innihaldið var það sagt gott. Spennan byrjaði að magnast upp hjá mér smám saman og þegar ég sat í stöppuðum salnum fann ég fyrir tilfinningu sem gerði síðast vart við sig þann 23. júlí 2008. Tilfinningin var eins og ég væri krakki í dótabúð, þar sem dótið væri gert úr nammi! Rosalegur spenningur.

Svo byrjaði myndin.

Augnaverkurinn gerði vart við sig strax á annarri mínútu. “Nei, fjandinn” hugsaði ég, “átti þetta ekki að vera fullkomin þrívídd?” En verkurinn fór og upp frá því gat ég notið einnar stórkostlegustu myndar sem gerð hefur verið. Myndin er svo flott. Þrívíddin svo vel unnin, umhverfið svo fullkomið, hugmyndin svo ágæt en handritið svo lélegt.

Hugmyndin að myndinni er góð. Að búa til mannhermu (e. Avatar) til einhverra hluta. Að búa til Avatar til verka eins og er gert í myndinni er hreint út sagt heimskulegt og tilgangslaust. Þetta er illa útfærð hugmynd. James Cameron er leikstjóri bakvið stórmyndirnar The Terminator, Titanic og The Abbyss en mér er sama. Terminator eru leiðinlegar myndir og Abyss sömuleiðis. Þetta er ekki einn af mínum uppáhalds mönnum.

Ég veit varla hvað annað ég á að segja. Það er aðeins tvennt sem stendur uppúr eftir að hafa horft á myndina. Annars vegar hve fullkomið útlitið er og hins vegar hve veik sagan er, sem dregur myndina niður. Eða kannski maður ætti að miða við hve góð sagan er, og svo hversu mikið formið hífir hana upp?
Það þýðir ekki að gefa Avatar 10, einungis vegna þess að hún er flott eða hún er með góða þrívídd. Hvað með þegar myndin kemur út á DVD? Eða hvað ef hún hefði upphaflega aldrei verið í 3D?

Þess vegna gef ég Avatar sjöu. Sagan er léleg og karakterar ótrúverðugir og illa skapaðir. Myndin er ekki leiðinleg, þannig séð. Hún er áhugaverð og njótanleg en hún er bara svo venjuleg.

Avatar fengi sex í einkunn hjá mér en tæknin hækkar hana upp um einn. Myndin á ekki skilið áttu, níu eða tíu, BARA vegna þess að hún er flott. Það er ekkert í myndinni sem við höfum ekki séð áður eða er byltingakennt.

Rating: ★★★½☆ 

Comments
3 Comments »
Categories
Kvikmyndir
Comments rss Comments rss

Michelsen 100 ára afmælisúr

4 December 2009 | 0:25

Núna 1. desember síðastliðinn gaf fjölskyldufyrirtækið frá sér úr í tilefni þess að fyrirtækið varð 100 ára 1. júlí á þessu ári. Viðtökurnar sem við höfum fengið eru rosalegar! Allir eru ánægðir með þau og hafa ekkert nema jákvætt að segja um þau. Michelsenarnir eru líka ótrúlega sáttir með þau og eru stoltir af þeim.

Úrin eru hönnuð af pabba og Robba bró í samvinnu við svissneskt fyrirtæki og framleidd þar í landi fyrir okkur. Upphaflega stóð til að koma með sjö týpur en það var alltof mikið, vegna hrunsins og hreinlega er það klikkað að reyna að koma með sjö týpur í einu. Í staðinn komum við með úr sem við erum fullkomlega sáttir með!
Michelsen hafa ekki gefið út úr í 70 ár frá því afi og langafi þurftu að hætta með sín úr vegna erfiðleika að útvega hluti í þau útaf seinni heimsstyrjöldinni.
Í úrinu eiga að sjást 100 ár. Það á að líkja eftir gömlu vasaúrunum sem afi og langafi voru með, en jafnframt vera smekklegt og nýtískulegt. Útkoman er rosalega, rosalega, klassískt úr.

Fyrirtækið sem framleiðir úrin á sér langa sögu, og byrjaði afi að stunda viðskipti við fyrirtækið fyrir tæpum 60 árum síðan og hefur verið samfellt viðskiptasamband síðan! Ótrúlegt.
Úrin eru með ETA sjálftrekktu (automatic) verki, en þeir sem þekkja til, eru þeir með mjög stöðug og traust verk. T.d. nota Breitling, Tag Heuer, Reymond Weil og fleiri þekktir, viðurkenndir úraframleiðendur verkin þeirra.
Ólarnar eru handgerðar í Slóveníu, með stimpluðu “Michelsen Watchmakers” merki innan í þær. Hægt er að fá þrjár tegundir af ólum; brúnt og svartt naut og svartan hákarl.
Í sylgjurnar er búið að grafa Michelsen logoið.

Þess utan komu aðeins 100 úr! 100 úr – 100 ár – 100 þúsund. Úrin ættu að vera umtalsvert dýrari en við ákváðum að hafa þetta táknrænt.
Í verkið er stimplað bæði M-ið okkar og Michelsen Watchmakers fyrir neðan það.Úrin komu í það takmörkuðu upplagi að við ákváðum að hafa þau merkt. Öðru megin megin við M-ið er grafið númer hvað úrið er og svo er 100 grafið hinum megin, sem sýnir númer hvað úrið er af 100. Grafið var í verkin úti í Sviss, þannig að öruggt er að aðeins eitt úr ber hvert númer. Ef einhver hefur t.d. fengið númer 7, og annar vill það og segir “Ef þú átt númer 7 tek ég eitt stykki úr”, getum við ekki sagt “Já, ekkert mál. 7 er laust.” Hvert úr er einstakt.

Þið afsakið ef þetta er leiðinleg lesning. :-) Langaði bara að tjá mig um þetta. Áhugasamir geta kíkt á fleiri myndir af úrinu á facebook síðunni okkar

Michelsen úr

Comments
No Comments »
Categories
Blogg
Comments rss Comments rss

« Previous Entries

Dagatal

March 2010
M T W T F S S
« Jan    
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031  

Nýlegar athugasemdir

  • Robbi on Avatar 3D (2009)
  • Stefán Claessen on Avatar 3D (2009)
  • Arnar Gísli on Avatar 3D (2009)
  • Maggi on Click (2006)
  • Arnar Gísli on Click (2006)
  • Steindór Hjartarson on Moon (2009)

Áhugaverðar síður

  • All Music
  • Anna og Robbi
  • ÍXS / X360
  • Facebook
  • Filman – kvikmyndasíða
  • Frank & Almar
  • Frank & Ösp
  • Gemsamyndir
  • IMDB
  • One Click Movies

Flokkar

  • Blogg (62)
  • Kvikmyndir (20)
  • sjónvarp (4)
  • Tæki & tækni (2)
  • tónlist (10)
  • Uncategorized (131)
  • YouTube (8)

Fyrri blogg

Síðustjóri

  • Log in
  • Entries RSS
  • Comments RSS
  • WordPress.org

Magnús D. Michelsen

Firefox 3
rss Comments rss valid xhtml 1.1 design by jide powered by Wordpress get firefox